Aðeins af díoxíni og fúran

Það þarf enga sorpbræðslu til að búa slík efni til þó svo að magnið sé að sjálfsögðu mest frá þeim. Maðurinn hefur framleitt efnin á opnum eldi frá upphafi vega. Díoxín verður til þegar kolefni er brennt í viðurvist klórs. Því hærra sem klórhlutfallið er í hráefninu, því meiri hætta á díoxínmengun. Þannig er möguleiki á framleiðslu díoxíns í mjög litlu magni við að nota dagblöð og annan pappír við uppkveikju í arninum heima hjá sér. Þetta kom í ljós í rannsóknum sem gerðar voru fyrir um áratug síðan þar sem sýnt var fram á að brennsla á mó til húshitunar leiddi af sér umtalsverða díoxínmengun vel fyrir iðnbyltingu. Þannig voru leiddar líkur að því að í Skosku Hálöndunum einum og sér hafi á ársgrundvelli á verið framleiddur um tíundi hluti þess díoxíns sem myndast í sorpbrennslum Bretlandseyja í dag. Mengun leynist því víða, það þarf bara að leita til að finna hana. 

Flokkun er í sjálfu sér ágætt tæki til að minnka díoxín mengun frá sorpbrennslum en kemur þó aldrei í veg fyrir hana tala nú ekki um ef rekstraraðilar hirða ekki um að koma sér upp almennilegum búnaði til meðhöndlunar útblæstrinum.  

Annars finnst mér þau mengunarmál sem eru komin í fréttirnar núna sýna andlegt ástand þessarar þjóðar í hnotskurn. Við stærum okkur af nægum fiski í sjónum og metveiði vegna sérstakrar þekkingar og veiðikænsku, hreinni náttúru vegna hreins og tæknivædds iðnaðar og landbúnaðar og einhvern vegin höldum við í fávisku okkar að við séum að gera allt miklu betur en allir aðrir. Mér finnst einfaldlega að við erum örfáar hræður sem búum lengst út í hundsrassi langt frá þéttbýliskjörnum og höfum einfaldlega ekki mannafla til að ganga hraðar á auðlindirnar okkar og menga allt í kringum okkur upp fyrir þolmörk umhverfisins svo mikill skaði verði að. Þetta hefur leitt til allsherjar kæruleysis í umhverfisvöktun hér á landi. Það eru örfáir að vinna við vöktun á mengun og fjármagn til hennar er af mjög skornum skammti. Gengur þetta kæruleysi meira að segja svo langt að það er ekki einu sinni til reglugerð á Íslandi um mengun í jarðvegi þrátt fyrir að þjóðir í kringum okkur hafi komið sér upp slíku tæki árið sautján hundruð og súrkál. Hvernig væri nú ef ráðamenn hysjuðu upp um sig buxurnar og settu sér stefnu í þessum málum sem vit væri í í staðinn fyrir að láta stórfyrirtæki og áhugasama vísindamenn standa straum af nánast öllum kostnaði og vinnu við umhverfisvöktun á þessu blessaða skeri? Og hananú.


mbl.is Gera á mælingar á díoxín í janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Komm on

Það má nú spyrja sig hvers vegna þessi tillaga var ekki löngu komin fram. Er tímasetningin e.t.v. tengd fréttum að það hylli undir einhvers konar lausn í Icesave. Mér finnst allavega vera skítaykt af þessu og þykir þetta vera tilvalin leið til að þæfa samskipti okkar við tjallann út í hið endalausa.


mbl.is Vilja höfða mál gegn Bretum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skárra væri það nú...

Skárra væri það nú ef maðurinn skuldaði ekki nokkurn aur. Það er löngu búið að sýna fram á að við venjulegir íslendingar vöðum flest öll í skuldum upp fyrir haus.

Ég verð að viðurkenna að ég hef ekki lesið þessar fréttir og ætla ekki að gera það en ég tek ofan fyrir þeim sem nenna allavega standa í þessu stappi fyrir okkur hin, hvort sem þeir skulda háar fjárhæðir eður ei.


mbl.is Segir sig úr stjórn vegna umfjöllunar Fréttatímans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekari flutningur Markarfljóts

Nýtum frekar ráðandi hafstrauma við landið og færum Markarfljót yfir í Þjórsá. Nú, fyrst við erum að þessu flytjum það frekar norður í land, þá þarf aurinn að fara miklu lengri leið í höfnina.
mbl.is Lóðsinn látinn plægja Landeyjahöfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með maltið?

Ekki það að ég sé sérstakur talsmaður þessa undraglundurs en hvað með maltið? Eru ekki einhverjar sniðugar staðhæfingar á þeim umbúðum?
mbl.is Drykkur frá My Secret innkallaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband